3.flokkur kvk Fjarðabyggð!

05.09.2010 15:02:50 / petralind

Lok tímabils

Ég náði nú ekki á ykkur öllum í gær en vildi þakka ykkur kærlega fyrir skemmtilegt sumar.

Það er frí á æfingum í september og nýtt tímabil byrjar svo í byrjun okt ;) Þið fáið upplýsingar um það þegar nær dregur!
Njótið þess nú að fá smá frí frá boltanum og gerið eitthvað allt annað! ...
En þið sem eruð og hafið verið meiddar takiði nú góða hvíld og nýtið hana vel áður en þið byrjið að æfa aftur, það er mun skemmtilegra að hvíla örlítið lengur heldur en að byrja of snemma og meiðast aftur í vetur ;)

En takk fyrir sumarið aftur ... nú byrjum við að telja niður dagana fyrir næsta sumar og getum ekki beðið, það á engin roð í ykkur næsta sumar það er bara þannig ! ;)


p.s. er einhver stemming fyrir því að hafa smá svona "lokahóf"  ??
Þar sem þið hittist allar og við plönum og gerum eitthvað skemmtilegt og endum sumarið með smá stæl  ??? Allar saman ... Mér dettur í hug að við gætum þá haft það næsta laugardag á eftir leiknum hjá mfl. kk, 11.sept !

Hvað segið þið um það og eru þá einhverjar hugmyndir ?


kv. Petra

» 39 hafa sagt sína skoðun

02.09.2010 21:25:30 / petralind

Akureyri - Ferðaplan

Við leggjum af stað frá Íþróttahúsinu á Nesk kl. 17:15 

Komum við á shell á Eskifirði kl. 17:40

Olís á Reyðarfirði kl. 18:00

Takiði með ykkur nesti í rútuna því það er sennilega búið að loka öllu á Mývatni þegar við komum þangað og, nei við ætlum ekki að stoppa í sjoppunni á Egilstöðum til að kaupa nesti ;)


Þetta eru þær sem fara í rútuna : ( Látið mig vita ef það vantar ykkar nafn þarna )

Ragga
Rakel Dís
Sara Ósk
Sunna
Klara
Alexandra
Steina
Unnur Ólöf
Sigrún
Andrea
Anna Margrét
Lilja Tekla
Heiðrún 
Berglind
Eyrún

Við gistum svo í Þórsheimilinu - þannig þið verðið að hafa með ykkur sæng/svefnpoka og kodda. Það er ekki vitlaust að taka lak með því við erum bara á einhverjum dýnum :)

Það eru bara til 24 dýnur í Þórsheimilinu og samtals erum við 34 - Alexandra og Lilja Tekla ætla að taka sínar eigin dýnur og það þurfa 2 til 3 að bjóða sig fram í viðbót að taka dýnur ;) Please skelliði því í komment svo við lendum ekki í vandræðum á Ak.

Það kostar 3000. kr í rútuna og 1000. kr fyrir gistingu. Ég tek við peningunum fyrir rútunni áður en þið farið í rútuna á morgun !

Á laugardaginn ætlum við að fara saman í göngutúr í bakarí þegar við vöknum, horfum síðan á fyrri hálfleikinn hjá strákunum og spilum okkar leik kl. 16:00. Við leggjum svo strax í hann heim þegar við erum búin að borða og svona eftir okkar leik ... þannig þið þurfið að hafa smá pening fyrir mat/nesti ;)

Munið svo eftir takkaskóm og legghlífum og keppnisskapinu ...og öllu þessu frábæra og jákvæða sem þið ætlið að taka með ykkur !!
 Ég tek heimavinnuna úr KA leiknum með okkur norður og við skellum því að sjálfsögðu í klefann (þið megið bæta við í spakmæla vinnuna ef þið viljið fyrir morgundaginn). Það þarf líka einhver að koma með hátalara fyrir Ipod, Steina eða Rakel ;)

Annars held ég að það sé allt orðið klárt - ef þið eruð ekki vissar um eitthvað, spyrjiði þá hér að neðan.

p.s Ingibjörg Þórðar ætlar að vera svo frábær að bjóða sig fram í að vera fararstjóri með okkur í ferðinni.

kv. PetraLind





» 40 hafa sagt sína skoðun

02.09.2010 12:12:01 / petralind

Akureyrarferð !!!



Nú er loksins eitthvað komið í ljós hjá okkur með ferðina norður ;)

Hópurinn :

Ragga
Elísa
Rakel Dís
Sara Ósk
Sunna
Klara
Alexandra
Steina
Unnur Ólöf
Sigrún
Andrea
Anna Margrét
Lilja Tekla
Katrín
Heiðrún
Eyrún ?

Planið er að fara í rútu á morgun með strákunum og gista í Þórsheimilinu. Við fáum dýnur í Þórsheimilinu, en það eru ekki til nógu margar dýnur svo einhverjar þurfa að taka dýnur með sér. VIð skoðum það á æfingu í dag.

Þetta myndi þá kosta 3000 kr. í rútu og 1000 kr.fyrir gistingu.

Ef þið ætlið ekki að fara með rútunni á morgun og ef þið ætlið ekki að gista þá verðið þið að láta mig vita STRAX. Skrifið það bara hér í komment....
Annars myndi ég helst vilja að þið mynduð allar gista og við reynum að halda hópinn sem mest fram yfir leik.... Hvort sem þið farið fyrr norður eða ekki ;) En við þurfum að fá tölur fyrir rútuna svo látið vita þegar þið sjáið þetta hvað ykkar plan er !!!!!!!! Eins og staðan er núna geri ég ráð fyrir öllum í rútu + gistingu þannig kommentið ef svo er ekki !

Kv.Petra

» 40 hafa sagt sína skoðun

01.09.2010 22:06:42 / petralind

Æfing fimmtudag og Akureyri

Æfingin á morgun, fimmtudag, er kl. 16:00.

Vonandi verður Norðurferðin komin á hreint á morgun, ég set inn upplýsingar um hana hér á bloggið eins fljótt og ég get.


» 27 hafa sagt sína skoðun

30.08.2010 11:18:45 / petralind

Æfingar í vikunni

Æfing í dag kl. 17:30 - 18:45

Sé til í dag hvort við höfum æfingu á Þriðjudag eða frí.

Svo er samæfing á miðvikudaginn kl. 17:30 - 19:00

Æfing á fimmtudag kl. 17:00 - 18:15

Föstudagur frí

Laugardagur - Bikarúrslit !





» 30 hafa sagt sína skoðun

28.08.2010 01:08:16 / petralind

Leikur við Þór

Á sunnudaginn er mæting 12:50 í íþróttahúsið á Nesk  ... leikurinn við Þór er kl. 14:00.

Hópurinn : Þið eruð allar í hóp !! Nema þið sem eruð meiddar, þið verðið bara með okkur á bekknum og svona.

Ragga
Elísa
Rakel Dís
Sara Ósk
Klara
Sunna
Katrín
Sigrún
Unnur Ólöf
Steina
Heiðrún
Andrea
Lilja Tekla
Anna Margrét
Eyrún (ert með ef þú treystir þér útaf bakinu)


Sá á ksí.is áðan að það er búið að setja úrslitaleikinn í bikarnum hjá okkur á Þórsvöll þann 4.sept.


» 27 hafa sagt sína skoðun

25.08.2010 23:37:48 / petralind

ÚRSLIT ole ole ole ...

Planið næstu daga lítur svona út :

Fimmtudagur : Æfing kl. 16:30 - 17:30 - Ætlum bara að skokka úr okkur leikinn og taka jafnvel skallatennis eða eitthvað létt.
Þið voruð að tala um að fara í sund og á pizzahlaðborð eftir æfingu sem er skemmtileg hugmynd. Þannig æfingin verður bara stutt og svo getið þið hoppað í pottinn eða sturtu eftir hana og farið í Egilsbúð.

Föstudagur og Laugardagur : Frí - Ætla samt að biðja ykkur að fara annaðhvort út að hjóla, skokka eða synda annan hvorn daginn. Það þurfa ekki að vera langar vegalengdir, bara að fá smá hreyfingu. Hinn daginn notið þið í FRÍ

Sunnudagur : Leikur við Þór á Nesk kl. 14:00

Í næstu viku er svo æfingar á sama tíma og alltaf og svo tökum við samæfingu á miðvikudaginn.

Úrslitaleikurinn í bikarnum er 4.september við Þór - það er ekki komin nein staðsetning á þann leik en ég læt ykkur vita um leið og við fréttum af því ;)

Segjum þetta gott í bili og til hamingju með sigurinn áðan :d


» 33 hafa sagt sína skoðun

24.08.2010 21:10:26 / petralind

Visa-Bikar

Leikurinn við KA er kl. 18:00 á morgun á Norðfirði.
Mæting niðrí íþróttahús kl. 16:45 :!:

Hópurinn sem á að mæta :

Ragga
Elísa
Rakel Dís
Klara
Sunna
Katrín
Sigrún
Unnur Ólöf
Steina
Heiðrún
Andrea
Lilja Tekla
Eyrún
Helena Líf - 4.fl
Sólrún Mjöll - 4.fl

Við ætlum að hittast í mat heima hjá Steinu í Víðimýri kl. 15:00 þar sem í boði verður kjúklingasalat og pasta og nýbakað brauð ala Bergþóra Ara. Þetta bara getur ekki klikkað ;) Munið að koma með eigin drykki ef þið viljið eitthvað annað að drekka en besta vatn á Íslandi - sem er einungis í boði í Mýrahverfinu :!:

Meiðslapjésar og aðrar sem eru ekki í hóp þið eigið líka að mæta í mat og taka þátt í þessu öllu saman að sjálfsögðu !!!

Ragga, Sunna og Rakel þið talið ykkur saman um far yfir á Norðfjörð og bjóðið Sólrúnu far, Ragga þú passar uppá hana ;) - þið mætið bara þegar þið eruð búnar í skólanum og svona, en reynið eins og þið getið að mæta um þrjú leitið í mat til Steinu, því það er mun skemmtilegra þegar allar eru mættar :d

Nokkrir mikilvægir punktar

- Reynið að smala eins mörgum áhorfendum og þið getið á leikinn, mömmu og pabba, afa og ömmu og öllum vinum ykkur og svo framvegis... !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
- Mætum tilbúnar í leikinn um leið og við mætum inn í klefa - skiljum allt ruglumbull eftir fyrir utan klefann
- Ekki gleyma að hafa leikgleðina með ykkur - við gleymdum henni í síðasta leik á móti KA en fundum hana svo á móti TIndastól. Svo munið eftir henni á morgun! ;)
- Ekki gleyma HEIMAVINNUnni - og mætið með A4 blaðið ykkar þar sem þið finnið spakmæli, eða setningu sem lýsir og styrkir liðið ykkar.
  ( Dæmi síðan á æfingu áðan : Ég get treyst öllum liðsfélögum mínum 100%, Ég ætla að vera leiðtogi í mínu liði, I´m in it to win it  ... og svo miklu miklu meira ) ;)

Og í lokinn þá bætum við inn sögunni um froskinn fræga - Þó þið hafið lesið um hann áður þá eigiði að lesa um hann aftur og aftur og aftur - Froskurinn er flottastur ;)

 Ævintýri frosksins ...

Einu sinni, fyrir langa löngu fóru froskar í keppni. Markmiðið var að ná upp á topp á háum turni. Margt fólk safnaðist saman til að horfa á þá og hvetja.

Keppnin byrjaði.

Í raun og veru hefur fólkið líklega ekki trúað því að það væri mögulegt fyrir froskana að komast efst upp á turninn, svo að allt sem maður gat heyrt frá áhorfendum var af þessum toga:

"Ohhhh þvílík fásinna !!! Þeir geta þetta aldrei !"

Einn og einn froskur fór að heltast úr lestinni en einn hélt ótrauður áfram.

Og fólkið hélt áfram :

"... Þvílík fásinna !!! Þeim tekst þetta aldrei!..."

Og froskarnir játuðu sig sigraða, nema þessi eini sem hélt sínu striki.

Að lokum, voru allir froskarnir hættir keppni, nema þessi eini sem einn og óstuddur, með ótrúlegri eljusemi og dugnaði, náði toppi turnsins.

Hina keppendurna langaði að vita hvernig hann fór að.

Einn af þeim gekk til hans til að spyrja, hvernig í ósköpunum hann hafði farið að því að halda þetta út og klára keppnina.

Og komst þá að því að hann ... var heyrnarlaus!

Boðskapurinn ... hlustaðu aldrei á fólk sem hefur þann leiða vana að vera neikvætt og sjá skít í hverju horni ... vegna þess að það rænir þránni úr hjarta þínu! Minntu sjálfan þig alltaf á mátt þeirra orða sem við heyrum og lesum. Þess vegna þarftu alltaf að hugsa jákvætt.

JÁKVÆĐNI !

Niðurstaða:

Lokaðu eyrunum fyrir hverjum þeim sem segir þér að þú getir ekki og munir ekki ná þeim markmiðum sem þú stefnir að til þess að láta drauma þína rætast. Stefndu hátt, hlustaðu á eigin rödd og hjarta og vertu JÁKVÆĐUR, þá öðlastu allt það sem þú sjálfur vilt.



Sjáumst á morgun með bullandi sjálfstraust og brjálað keppnisskap ;)


» 31 hafa sagt sína skoðun

23.08.2010 13:34:18 / petralind

Frí í dag !

Sælar og takk fyrir síðast !
Bara að minna ykkur á að það er frí á æfingu í dag ... Reynið að fara í pottinn og ná helginni úr ykkur.

Æfing á morgun, þriðjudag, kl. 19:00 - 20:15 og svo er bikarleikur við KA á miðvikudaginn kl. 18:00 á Nesk.

Það er spurning hvort við reynum ekki að borða saman fyrir þann leik ?!?! Hvenar eruði búnar í skólanum á miðvikudaginn ??




» 28 hafa sagt sína skoðun

20.08.2010 21:03:08 / petralind

Norðurferð ..

Við leggjum af stað kl. 10:00 í fyrramálið frá íþróttahúsinu á Nesk ...
Stoppum svo í shell á Eskifirði og Olís á Reyðarfirði !!

Munið að lesa bloggið hér fyrir neðan hvað þið þurfið að borga í ferðina og svona. Og það eiga einhverjar eftir að borga 3000 kr fyrir ferðina norður í síðustu viku. Ég vil fá þann pening líka á morgun !!!!!!!!!

Munið svo að taka með ykkur dýnu og svefnpoka og allar græjur og að sjálfsögðu góða skapið ;)

Sjáumst í fyrramálið.





» 32 hafa sagt sína skoðun

19.08.2010 23:53:30 / petralind

Norðurferð

Planið fyrir norðurferðina er þannig að við leggjum af stað frá Nesk um 10 eða hálf 11 leitið á laugardaginn.... Ég set inn nákvæmari tímasetningu hér einhvertíma á morgun þegar það er komið á hreint.

Þið þurfið að borga 3500 kr. fyrir rútu og gistingu ! Síðan fáum við morgunmat á sunnudeginum á Sauðárkróki og það er 950 kr á mann.

Leikurinn við KA er kl. 16:30 á laugardaginn og eftir hann förum við á Greifann á pizzahlaðborð. Það kostar 1300 kr á mann og 1650 ef þið fáið ykkur gos með !

Svo brunum við beint á Sauðárkrók þar sem við gistum í íþróttahúsinu þannig þið verðið að hafa með ykkur dýnu og sæng eða svefnpoka. Svo spilum við kl. 12:00 við Tindastól á sunnudeginum.
 
Þetta er gróft plan fyrir ferðina - þannig þið eigið að getað séð nokkurnvegin hversu mikinn pening þið þurfið til þess að kaupa ykkur nesti og svo frv...

Við förum sennilega ekki í rútu með 4.flokki eins og ég var búin að segja á æfingu í dag þar sem leiknum þeirra seinkaði eitthvað þannig við förum sér í lítilli rútu ;)

Þetta er hópurinn :
Ragga
Rakel Dís
Andrea
Unnur Ólöf
Eyrún
Katrín
Lilja Tekla
Sara Ósk
Steina
Sunna
Heiðrún
Anna Margrét


Ég man ekki eftir fleiru í bili - en ég set inná bloggið á morgun kl. hvað við leggjum í hann og eitthvað fleira sem ég gæti hafa gleymt ;)

-Munið svo að mæta á völlinn á morgun og styðja strákana ;)

Sjáumst

» 28 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 19:08:23 / petralind

Æfing á fimmtudag

Æfingin er kl. 9 í fyrramálið .... en ekki kl. 6 !!!

Ses ;)

» 25 hafa sagt sína skoðun

16.08.2010 10:18:18 / petralind

Norðurferð og fl.

Það er leikur hjá okkur næst á laugardaginn við KA á Akureyri og svo á sunnudaginn við Tindastól á Sauðárkróki.
Þannig að það er helgarferð á döfinni hjá okkur :!:

Alex, Klara og Sigrún eru í fríi og þær eru einu sem ég geri ráð fyrir í fríi í þessum leikjum. Kommentið hér fyrir neðan hvort þið komist með um helgina eða ekki !!!!!!!!


Það eiga ennþá nokkrar eftir að BORGA fyrir ferðina til Akureyrar um daginn 3000 kr. Ég vil fá það ekki seinna en núna bara !!! Komasvooo

Það er ekki æfing í dag - en það er skylda að fara út að hlaupa, hjóla eða synda eða eitthvað í staðinn.
Æfing á morgun kl. 19:00 !!!


» 37 hafa sagt sína skoðun

13.08.2010 16:17:07 / petralind

Leikur við Tindastól

Mæting 10:45 í Höllina ... leikurinn byrjar kl. 12:00 á morgun !!!

Þið eruð allar í hóp sem eruð heima ..

Þetta eru nöfnin sem ég er með á blaði !

Elísa
Sigrún
Unnur Ólöf
Katrín
Heiðrún Kara
Andrea
Sunna
Sara
Steina
Eyrún

10 manns ...  ég reyni að smala okkur allavega í eins og eitt stykki byrjunarlið í kvöld.


En það þýðir ekkert að tuða yfir því og við reynum bara að gera eins gott úr hlutunum og við getum ;)


Sjáumst á morgun ;)


» 27 hafa sagt sína skoðun

11.08.2010 12:47:08 / petralind

Samæfing í dag !

Það er samæfing í dag þannig þið þrjár, Rakel, Sunna og Ragga eigið að mæta á Nesk...

4.Flokkur er með okkur á æfingu í dag ... vonandi verðum við nógu margar til að spila á nokkuð stórann völl ! 

Ég fékk þetta í pósti um daginn þannig rútan ætti að vera svona !!
Æfingin er kl. 17:30 - 19:00 og mun rútan fara frá Fásk kl. 16:15, frá Rey kl. 16:35 (við sparisjóðinn) og frá Esk kl. 16:50.


Hópurinn sem fer til Akureyrar á morgun er svona :

Ragga
Elísa
Klara
Rakel Dís
Alexandra
Sigrún
Unnur Ólöf
Andrea
Sunna
Sara
Steina
Eyrún
Helena Líf

Rútan fer frá íþróttahúsinu á Nesk kl. 11 í fyrramálið...  
Við verðum við sjoppuna á Eskifirði rétt fyrir hálf 12 og svo við Olís á Reyðarfirði rétt á eftir þannig veriði mættar í sjoppuna á réttum tíma ;)

Takiði nesti og svona með ykkur til að hafa í rútunni á leiðinni norður !! Síðan förum við og fáum okkur eitthvað að borða strax eftir leikinn.

Ég man ekki alveg upphæðina í rútuna, mig minnir að það sé 3000 kr en ég set það inn strax á eftir þegar ég er búin að ath. málið ! Munið eftir að borga fyrirfram, ég nenni ekki að vera rukka ykkur og fá peninga alla næstu viku !!


Ses

» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Þínir flokkar